Kajak ferð

hópefli

Stokkseyri

Stærð hóps

10-50 manns

Verð frá

8.900 kr

Kajakferðir á Stokkseyri: útivera, náttúra og góð samvera


Grípið árarnar og upplifið Stokkseyri frá nýju sjónarhorni, skemmtileg hópafþreying þar sem hreyfing, íslensk náttúra og góð samvera fara saman.


Kajakferðir á Stokkseyri eru frábær kostur fyrir hópa sem vilja komast út í náttúruna og gera eitthvað öðruvísi saman. Róið er um einstakt umhverfi við Stokkseyri, þar sem tjarnir, þröngir skurðir, falleg strandlengja og fjölbreytt fuglalíf skapa skemmtilega umgjörð um ferðina. Ef heppnin er með í för gætu forvitnir selir jafnvel látið sjá sig.


Hægt er að velja á milli mismunandi kajakferða eftir áhuga og ævintýraþörf hópsins. Fyrir stærri hópa er Challenge sérstaklega skemmtilegur kostur þar sem reynir á samhæfni hópsins og hægt er að bæta við hópefli og leikjum. Fyrir þá sem vilja lengri upplifun er meðal annars hægt að velja Adventure ferð á sjó meðfram fallegum skerjagarðinum.


Engin ástæða er til að hafa áhyggjur þótt ekki allir séu vanir kajakróðri. Notaðir eru svokallaðir „sit on top“ kajakar og hópurinn fær nauðsynlegan búnað og leiðsögn eftir því hvaða ferð er valin.


Frábær afþreying fyrir hópa sem vilja ferskt loft, hreyfingu og góða samveru, hvort sem markmiðið er að njóta náttúrunnar eða bæta smá hópefli og áskorunum við daginn.


Fjöldi:  Kajakflotinn getur tekið allt að 50 manns í einu. Fjöldi getur verið mismunandi eftir því hvaða ferð er valin.


Ferðir í boði:  Meðal annars Challenge fyrir stærri hópa, Adventure, Róbinson Krúsó og fleiri kajakupplifanir.


Búnaður: Í almennum ferðum er útvegaður regnsamfestingur, stígvél, vettlingar og björgunarvesti. Nákvæmlega hvað er innifalið fer eftir valinni ferð.


Gott að hafa með: Hlý föt, aukaföt, handklæði og sundföt.


Staðsetning: Stokkseyri, um 55 km frá Reykjavík. Mæting er við Sundlaugina á Stokkseyri.


 

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.

Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.